Ísland Palestína - Hvað er að gerast?
21. janúar 2009 klukkan 22:40
Jæja! Ég var nú búin að heita sjálfri mér því að blogga ekki um þessa svokölluðu kreppu. Þar sem fátt annað er rætt þessa daganna hefur heldur lítið verið um blogg síðan í október en það er annað mál. Í dag get ég hreinlega ekki orða bundist. Það sem mér liggur mest á hjarta er ekki kreppan sjálf heldur óeirðir og mótmæli.
Fyrir mér eru árásir Ísraelsmanna á Gaza mjög fjarstæðukenndar og hreinlega óskiljanlegar. Af hverju fá Ísraelsmenn stuðning frá Bandaríkjunum til að murka lífið úr Palestínumönnum? Mér er nokkuð ljóst að yfirskin Ísraelsmanna eru að þeir séu að uppræta Hamas og árásir Hamasliða á Ísraelsmenn, en ætli þetta sé nokkuð svona einfalt? Sama hvað ég hef sett mig inn í þetta mál í gegnum tíðina þá er mér alveg óskiljanlegt hvernig hægt er að styðja aðgerðir eins og þessa sem ég vil kalla þjóðarmorð.
Aðrar óeirðir sem ég ætla nú ekki alveg að líkja saman við þessar en eru mér engu að síður óskiljanlegar eru það sem í dag kallast mótmæli. Hvað eru þetta annað en óeirðir og átök? Heldur fólk virkilega að árásir, lögbrot, skemmdarverk og ribbaldaframganga skili einhverju? Og hvað á það að fyrirstilla að fólk mæti með börnin sín í mótmælaaðgerðir í dag þegar vitað er að mótmælin í gær voru ekki friðsamleg og beita þurfti kylfum og piparúða?
Í fréttum í gær kom fram lögregla handtók ólögráða ungmenni auk þess sem þeir tóku 11 ára gamlan dreng í sína gæslu. Í fréttinni var drengurinn með bláan skíðahjálm á höfði. Fyrir mér er óskiljanlegt hvað börn og ungmenni eru að gera á svæðinu. Ég veit að margir eru í vondum sporum en af hverju berjast börn og unglingar fyrir kostningum? Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ástandið hefur áhrif á þau ekki síður en alla aðra og eins og einn kennari lýsti því fyrir mér í dag er stuttur þráðurinn í öllum, ekki síður grunnskólabörnum. Þau endurspegla spennuna í kringum sig.
En hvar fá börnin hugmyndirnar? Eitt er víst, að þau hafa ekki kosningarétt. Ef aðrir kjósa fyrir þeirra hönd eru þau þá viss um að þeir sem hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn síðustu 12 árin hætti að kjósa hann og kenni honum um þetta? Eruð þið viss? Eru ekki allir komnir til með að halda áfram að kenna hvorum öðrum um og benda á næsta flokk og segja að þetta sé honum að kenna, ekki sínum eigin.
Ég skil ekki heldur hvernig fólk getur látið sína reiði bitna á fólki í opinberum störfum og þjónustustörfum. Ekki fannst mér fallegt að sjá myndbandið á visir.is þar sem mótmælendur gerðu aðsúg að tæknifólki Stöðvar 2 og þjónum og kokkum á Hótel Borg á Gamlársdag. Ekki skil ég hvers vegna fólk heldur að það sé allt í lagi að egna lögreglu, fara gegn tilmælum hennar, virða ekki aðvaranir og fyrirskipanir hennar en halda að allt sé svo í góðu bara ef það lyftir báðum höndum upp í loft. Ef þú átt að fara út úr garði Alþingishússins og margbúið er að biðja þig um það, þú snýrð baki í lögreglu og myndar vegg ásamt öðrum gegn henni, er það þá sem þú ert í friðsælum mótmælum og ert ekkert að gera af þér? Ef þú ert búinn að klifra yfir girðingar og brjótast inn á Hótel Borg og þú hlýðir ekki fyrirmælum um að koma þér út, ert þú þá í friðsamlegum mótmælum af því þú réttir upp hendurnar þar sem þú stóðst inni á Hótel Borg? Átti ekki allt að vera í gúddí af því að þú varst uppi með hendur?
Ég varð vitni að merkilegum atburði í Debenhams í byrjun desember. Þar sem ég var að bíða eftir afgreiðslu komst ég ekki hjá því að heyra samtal konunnar sem var á undan mér við afgreiðslustúlkuna. Hún biður afgreiðslustúlkuna um svartan bol sem átti að vera með ákveðnu sniði, ákveðnum lit, með ákveðnum hlýrum og fleira þess háttar. Afgreiðslustúlkan kemur með bol sem uppfyllir þessi skilyrði og sýnir kúnnanum sem virtist lítast vel á þetta. Knúnninn spyr hvað bolurinn kosta og afgreiðslustúlkan nefnir upphæð sem var rúmlega 4600 kr. Viðbrögð kúnnans voru stórt "dæs", setningin "já, já það er bara svona" (sagt með gremjutóni og hneikslun) og svo henti hún bolnum í fangið á afgreiðslustúlkunni og gekk út. Finnst ykkur þessi framkoma í lagi? Hafði afgreiðslustúlkan eitthvað með verðlagninguna á bolnum að gera?
Í kastljósi í dag sá ég manneskju standa næst röð lögreglumanna sem varði bíl forsætisráðherra þegar hann var að aka frá Stjórnarráðinu. Þessi manneskja hélt á kornabarni vöfðu inn í teppi. Er í lagi að bera börn fyrir sig í mótmælum?
Í sama innslagi sást barn, ekki eldra en 11 ára kasta eggjum í Alþingishúsið. Er það í lag?
Eitt veit ég að engri af spurningunum hér að ofan svara ég játandi.
Nei mér finnst þetta ekki í lagi.
Þar með sagt er ég ekki sammála því að spillingin í stjórn- og hagkerfinu sé í lagi heldur. Ég er mjög á móti henni og finnst staðan sem þjóðfélagið er í vægast sagt ömuleg en ég er líka á móti ribbaldahætti, óeirðum og grímum.
Mótmælendur sem ganga fram með þessum hætti og geta ekki komið fram undir nafnið eða persónu tala ekki fyrir mig.
Þórhildur
Vá hvað ég er sammála með stóru ESSI
#2
23. janúar 2009 klukkan 20:33
Óla Maja
Ég heyrði viðtal við einn pabba sem átti 6 mánaða gamalt barn (veit ekki hvort það er sá sem þú ert að minnast á) og sá sagði: Ég vil að börnin mín (hann var með annað 2 ára) muni eftir því að hafa tekið þátt í þessum mótmælum" HVAÐ ER AÐ MANNINUM!!! Hvaða barn man eftir sér 6 mánaða? já eða 2 ára!!!!! Come on það er sko ekki í lagi með margt af þessu liði! Ég er svo sammála þér Guðbjörg og mér finnst þetta FRÁBÆRLEGA orðað hjá þér.
#3
23. janúar 2009 klukkan 23:56
Linda Hrönn
Og hana nú!! :) Mikið agalega er ég sammála úff þetta er ekki venjulegt hvernig þetta er.
#4
25. janúar 2009 klukkan 18:48
Jóna Björg
Bara ég aftur !
#5
02. febrúar 2009 klukkan 18:21
Malla
Heyrru dúlla mín, nú er ég búin að breyta blogginu í http://www.123.is/hoffell/
Vildi bara láta þig vita svo þú getir kannski látið mig vita þegar þú ætlar að kíkja við í kaffi eða te.
Bestu kveðjur á þig.
Vildi bara láta þig vita svo þú getir kannski látið mig vita þegar þú ætlar að kíkja við í kaffi eða te.
Bestu kveðjur á þig.
#6
07. febrúar 2009 klukkan 00:43
Jóna Björg
Hmmmmm, hvernig er það á ekki að koma amk. eitt blogg í mánuði ?????
#7
25. febrúar 2009 klukkan 16:28
Jenni
Sakna bloggs.....
#8
18. apríl 2009 klukkan 23:15
Jóna Björg
Nú er kominn 19. apríl hjá mér, en bara 21. janúar hjá þér..............er ekki alveg að fatta þetta.........áttu ekkert dagatal elskan..........eða sýnir það bara ÁRTALIÐ ???????
Ég er allavega farin að sakna frétta frá þér, og sýnist ég ekki vera alveg ein um það !
Kv. Jóna fréttafíkill
Ég er allavega farin að sakna frétta frá þér, og sýnist ég ekki vera alveg ein um það !
Kv. Jóna fréttafíkill
#9
19. apríl 2009 klukkan 23:05
Jóna Björg
13.júní ;)
#10
13. júní 2009 klukkan 20:47
Ég er svo innilega sammála, fólk á auðvitað rétt á að mótmæla en ekki með þessum hætti.
Ég tók einmitt líka eftir þessum með litla barnið í fanginu og hugsaði hvað er maðurinn að pæla !!!!! og þessir strákar 10-12 ára, var einmitt að spá í hvar foreldrar þeirra væru og hvort þeim finndist virkilega í lagi að börnin þeirra væru að grýta lögregluna og Alþingishúsið !
Gerir þetta fólk sem "þykist" vera að mótmæla fyrir OKKUR sér grein fyrir hverjir þurfa að borga viðgerðir og hreinsun á þessum húsum sem þeir eru að grýta ?
EKKI Í MÍNU NAFNI TAKK !