Ummmmm fékk bara vatn í munninn við að lesa um fiskibollurnar, er allt of löt að steikja fiskibollur en finnst samt voða gott að borða þær :)
Tónleikar eru fínir ......ef Egill Ólafsson kemur hvergi nærri og helst ekki Diddú heldur, annars er hún allt í lagi ef hún er ekki í óperu gírnum !
Kveðja frá Seyðó
Líður að tónleikum
26. nóvember 2008 klukkan 19:53
Jæja nú styttist í aðventutónleika Kórs Fjarðabyggðar. Það vill svo skemmtilega til að ég tróð mér í hann. Maður kann að velja þetta. Ég er nú ekki að syngja með hverjum sem er! Ég vel að vera með comeback eftir margra ára pásu þegar rétta fólkið mætir en einsöngvarar eru Egill Ólafsson og Diddú.
Ef ég segi satt og rétt frá og ýki ekki (en mín fjölskylda er tæpast þekkt fyrir það) ætti ég nú frekar að segja var dreginn í hann en mamma, Tinna og Heiða samstarfskona mín drógu mig af stað. Við erum búin að vera að æfa í nokkrar vikur og er mjög gaman. Við Tinna lækkum meðalaldurinn töluvert en höfum bara gaman af. En það er um að gera að ég aulýsi þetta vel.... tónleikarnir eru á sunnudaginn (30. nóv) kl. 16.00 í Kirkju- og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar Eskifirði. Þarna verða líka barnakór úr Fjarðabyggð og strengjasveit. Eins og allt lítur út eftir síðustu æfingu þá stend ég á endanum og líður eins og fífli því ég væri alveg til í að hverfa í miðjum kórnum.
Eftir þessa söngtörn er fátt annað að gera en að reyna að herma eftir nágrönnunum og henda upp einhverjum seríum en hér í götu var búið að fullskreita 1 hús fyrir rúmri viku (meira að segja ljósajólatré úti í glugga) og 2 núna. Ég verð nú að monta mig og segja að ég hafi sko verið Magga myndó á mánudaginn (Gunnar reyndar líka) því við steiktum 4 kg. af fiskibollum. Þannig ef þið vogið ykkur í heimsókn eigið þið þá hættu að vera látin éta fiskibollur. Ég hef aldrei fundið aðra eins lykt í mínum hýbýlum eftir að ég fór að búa. Þetta lyktar ekki eins og heimili hjá ungu pari heldur áttræðum gamalmennum, svona típisk, þung, súr matarlykt. Jakk....
Annars styttist í langþráð frí en ég ætla að klára sumarfríið mitt í byrjun desember - ekki seinna vænna. Við ætlum að skella okkur í bæinn og ná okkur í svolítið jólastress. Það hlýtur að flokkast undir það að koma sér í gírinn fyrir jólinn
.
Svo er bara að sjá hvort maður kemst út úr húsi á morgunn en veðurkortið í kvöld var vægast sagt skrautlegt!
Arios amigos
Jóna Björg
#2
01. desember 2008 klukkan 14:38
Helga S
Namminamm...nú liggur við að ég tæti upp fiskibollur úr frystinum mínum!!! Vonandi hafa tónleikarnir lukkast vel :)
#3
05. desember 2008 klukkan 20:41
Jóna Björg
Ég aftur :)
#4
08. desember 2008 klukkan 22:16
Knús, arna