Auglýsing

Og allt hitt frábæra fólkið

Halló

07. nóvember 2008 klukkan 14:20
Daginn, daginn. Best að henda einhverju hér inn svo Jóna Björg fari ekki að kvarta Wink þótt ég hafi svo sem ekkert til málanna að leggja þessa daganna.
Takk fyrir afmæliskveðjurnar og kvittið. Þið stóðurst væntingar.

Hér á Nobbanum er bara vorveður, úði, þoka og 10° hiti og allir orðnir snarruglaðir. Flugurnar farnar og suða og kóngulærnanar farnar að spinna vefi aftur. Eins gott að ég er búin að setja nagladekkin undir Laughing.

Skutlan ætlar að vera á faraldsfæti þessa helgina en við stefnum á að rústa eins og einu blakmóti á Seyðisfirði. Í tilefni þess datt þessi litla staka upp úr mér (ég er soddan ógurlegt ljóðskáld):

Fyrir blakmót er ég gíruð og klár,
enginn magapína.
Anstæðingar fella blóð svita og tár,
við ætlum þeim í tvo heima að sýna.

Tatarata.....

Svo er auðvita stefnt á konukvöld á Egilsstöðum með YfirSmellinum og öllum hinum skutlunum. Og hvað það verður mikið stuð.

Jæja best að sinna vinnunni.
 
Malla
Jahérna hér, mér þykir kóngulærnar þarna vera frekar snemma á ferðinni eða þannig sko.

Heyrðu elskan mín, þar sem ég stóð mig ALLS ekki hér um daginn þegar þú áttir afmæli þá sendi ég þér bara afmæliskveðjuna núna, Til lukku ;)

Góða skemmtun um helgina.
#1
07. nóvember 2008 klukkan 15:32
 
Jóna Björg
Ha, á maður von á heimsókn um helgia ??????
#2
07. nóvember 2008 klukkan 20:05

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur