Ísland Palestína - Hvað er að gerast?
21. janúar 2009 klukkan 22:40
Jæja! Ég var nú búin að heita sjálfri mér því að blogga ekki um þessa svokölluðu kreppu. Þar sem fátt annað er rætt þessa daganna hefur heldur lítið verið um blogg síðan í október en það er annað mál. Í dag get ég hreinlega ekki orða bundist. Það sem mér liggur mest á hjarta er ekki kreppan sjálf heldur óeirðir og mótmæli.
Fyrir mér eru árásir Ísraelsmanna á Gaza mjög fjarstæðukenndar og hreinlega óskiljanlegar. Af hverju fá Ísraelsmenn stuðning frá Bandaríkjunum til að murka lífið úr Palestínumönnum? Mér er nokkuð ljóst að yfirskin Ísraelsmanna eru að þeir séu að uppræta Hamas og árásir Hamasliða á Ísraelsmenn, en ætli þetta sé nokkuð svona einfalt? Sama hvað ég hef sett mig inn í þetta mál í gegnum tíðina þá er mér alveg óskiljanlegt hvernig hægt er að styðja aðgerðir eins og þessa sem ég vil kalla þjóðarmorð.
Aðrar óeirðir sem ég ætla nú ekki alveg að líkja saman við þessar en eru mér engu að síður óskiljanlegar eru það sem í dag kallast mótmæli. Hvað eru þetta annað en óeirðir og átök? Heldur fólk virkilega að árásir, lögbrot, skemmdarverk og ribbaldaframganga skili einhverju? Og hvað á það að fyrirstilla að fólk mæti með börnin sín í mótmælaaðgerðir í dag þegar vitað er að mótmælin í gær voru ekki friðsamleg og beita þurfti kylfum og piparúða?
Í fréttum í gær kom fram lögregla handtók ólögráða ungmenni auk þess sem þeir tóku 11 ára gamlan dreng í sína gæslu. Í fréttinni var drengurinn með bláan skíðahjálm á höfði. Fyrir mér er óskiljanlegt hvað börn og ungmenni eru að gera á svæðinu. Ég veit að margir eru í vondum sporum en af hverju berjast börn og unglingar fyrir kostningum? Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ástandið hefur áhrif á þau ekki síður en alla aðra og eins og einn kennari lýsti því fyrir mér í dag er stuttur þráðurinn í öllum, ekki síður grunnskólabörnum. Þau endurspegla spennuna í kringum sig.
En hvar fá börnin hugmyndirnar? Eitt er víst, að þau hafa ekki kosningarétt. Ef aðrir kjósa fyrir þeirra hönd eru þau þá viss um að þeir sem hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn síðustu 12 árin hætti að kjósa hann og kenni honum um þetta? Eruð þið viss? Eru ekki allir komnir til með að halda áfram að kenna hvorum öðrum um og benda á næsta flokk og segja að þetta sé honum að kenna, ekki sínum eigin.
Ég skil ekki heldur hvernig fólk getur látið sína reiði bitna á fólki í opinberum störfum og þjónustustörfum. Ekki fannst mér fallegt að sjá myndbandið á visir.is þar sem mótmælendur gerðu aðsúg að tæknifólki Stöðvar 2 og þjónum og kokkum á Hótel Borg á Gamlársdag. Ekki skil ég hvers vegna fólk heldur að það sé allt í lagi að egna lögreglu, fara gegn tilmælum hennar, virða ekki aðvaranir og fyrirskipanir hennar en halda að allt sé svo í góðu bara ef það lyftir báðum höndum upp í loft. Ef þú átt að fara út úr garði Alþingishússins og margbúið er að biðja þig um það, þú snýrð baki í lögreglu og myndar vegg ásamt öðrum gegn henni, er það þá sem þú ert í friðsælum mótmælum og ert ekkert að gera af þér? Ef þú ert búinn að klifra yfir girðingar og brjótast inn á Hótel Borg og þú hlýðir ekki fyrirmælum um að koma þér út, ert þú þá í friðsamlegum mótmælum af því þú réttir upp hendurnar þar sem þú stóðst inni á Hótel Borg? Átti ekki allt að vera í gúddí af því að þú varst uppi með hendur?
Ég varð vitni að merkilegum atburði í Debenhams í byrjun desember. Þar sem ég var að bíða eftir afgreiðslu komst ég ekki hjá því að heyra samtal konunnar sem var á undan mér við afgreiðslustúlkuna. Hún biður afgreiðslustúlkuna um svartan bol sem átti að vera með ákveðnu sniði, ákveðnum lit, með ákveðnum hlýrum og fleira þess háttar. Afgreiðslustúlkan kemur með bol sem uppfyllir þessi skilyrði og sýnir kúnnanum sem virtist lítast vel á þetta. Knúnninn spyr hvað bolurinn kosta og afgreiðslustúlkan nefnir upphæð sem var rúmlega 4600 kr. Viðbrögð kúnnans voru stórt "dæs", setningin "já, já það er bara svona" (sagt með gremjutóni og hneikslun) og svo henti hún bolnum í fangið á afgreiðslustúlkunni og gekk út. Finnst ykkur þessi framkoma í lagi? Hafði afgreiðslustúlkan eitthvað með verðlagninguna á bolnum að gera?
Í kastljósi í dag sá ég manneskju standa næst röð lögreglumanna sem varði bíl forsætisráðherra þegar hann var að aka frá Stjórnarráðinu. Þessi manneskja hélt á kornabarni vöfðu inn í teppi. Er í lagi að bera börn fyrir sig í mótmælum?
Í sama innslagi sást barn, ekki eldra en 11 ára kasta eggjum í Alþingishúsið. Er það í lag?
Eitt veit ég að engri af spurningunum hér að ofan svara ég játandi.
Nei mér finnst þetta ekki í lagi.
Þar með sagt er ég ekki sammála því að spillingin í stjórn- og hagkerfinu sé í lagi heldur. Ég er mjög á móti henni og finnst staðan sem þjóðfélagið er í vægast sagt ömuleg en ég er líka á móti ribbaldahætti, óeirðum og grímum.
Mótmælendur sem ganga fram með þessum hætti og geta ekki komið fram undir nafnið eða persónu tala ekki fyrir mig.
Ekki minn tími?
14. janúar 2009 klukkan 22:09
Í dag er ég búin að vera heima lasin. Ekki finnst mér það nú mjög gaman. Í gærkvöldi helltist yfir mig þvílíkur slappleiki með hausverk, hita og beinverkjum. Það er nú ekki til hitamælir á heimilinu en hitinn hefði sjálfsagt til að kynda húsið, að minnsta kosti
. Ég lagðist upp í rúm, tók 2 verkjatöflur og reyndi að berja mig niður. Það gekk vægast sagt mjög illa og eftir að hafa snúið mér ótal hringi í 2 klukkutíma dúraði ég aðeins. Þegar ég vaknaði eftir um 10 mín svefn var ég enn að steikjast úr hita þó ég væri eingöngu með sæng á hæ. fæti frá hné og niður. Það var eins og sjálfvirkt úðakerfi í sænginn væri að bregðast við ofurhita því fóturinn var þvílít blautur. Eitthvað svipað var í gangi í dýnunni því bakið var límt við lakið. Jammí!!! Svo mín er bara búin að vera heima í dag en er mun hressari og hitastigið nokkuð normal. Eina sem ég hef reyndar getað pínt mig til að borða með góðu móti er bugles
, eins og það er nú holt og gott. Þegar ég hef ekki list á súkkulaði þá er mikið að en 1 kg. nóakonfektkassinn sem gleymdist að opna fyrir jól og var opnaður á mánudaginn hefur ekki einu sinni heillað. Dagurinn hefur semsagt bara farið í að hanga á facebook (ágætis afþreying það, greinilega hægt að gleyma sér endalaust þar), píanó glamur, útsaum og fleira dútl.
Til að gera allt skemmtilegra í dag þá snéri ég hnéð á mér í blaki á mánudaginn svo það marrar bara og brakar í draslinu. Var nú að vonast til það færi e-ð að minnka en væntingar mínar eru ekki alveg að bera árangur. Eru þetta ellimerki? Er maður bara orðinn drasl?
Allaveganna. Ég skemmti mér alveg æðislega vel á hjónaballi. Matur var frábær og skemmtiatriðin æðisleg. Ballið var fínt en ég hefði vilja láta trampa aðeins minna á mér. Ég var nú í þokkalega háum hælum en kannski er ég samt bara svo lítil að ég sést varla.
Jæja nú ætla ég að standa upp frá tölvunni og hætta þessu bugles áti. Annars fæ ég kransæðastíflu af þessu ógeði.
Góða nótt...
Gleðilegt nýtt ár!!!
06. janúar 2009 klukkan 22:36
Gleðilegt árið og takk fyrir það gamla. Það eru auðvitað allir búnir að strengja áramóta heit um að losa sig við bumbuna, ekki satt? Ég verð nú að viðurkenna að áramótaheit eru ekki mín sterka hlið. Ef svo ólíklega vill til að mér dettur í hug að strengja eitthvað slík er ég venjulega búin að gleyma því á nýárskvöld .... eða allavega ekki seinna en á þrettándanum. Sem er víst í dag já. Þannig að það er ekki fyrir Gulla gullfiskinn mig að gera svona.
Við skötuhjú skelltum okkur á ball með Egó á Eskifirði milli hátíðanna. Annað hvort er Bubbi farinn að eldast, nú eða ég, nema hvort tveggja sé. Ekki gat ég heyrt að það væri mikið Egó í þessu en ég man ekki hvort ég taldi 4 eða 5 Egó lög. Hin lögin var hann meira á egó flippi kannski, því restin voru lög eftir hann en þá helst til ástarvellu í rólegri kantinum og ekki gekk mér voðalega vel að dilla mér við þær. Öll lögin voru á hálfum hraða og þegar Björn Jörundur kom og tók dúett með honum sló þetta öll met og ég hélt ég þyrfti að fara upp á svið og banka á bakið á þeim svona til að vekja þá á míkrafónunum. Sveina eins og Sigfinn gamla í Spaugstofunni.
Já það er nýtt ár og svona... enga neikvæðini. Ekki fleiri orð um þetta nema ég get allavega sagt að ég sé búin að prófa að fara á ball með Egó og þarf þá ekkert að prófa það aftur.
Við gömlu höfum uppfært okkur á nýja árinu og erum bæði komin á fésbókina. Ég komst nú reyndar að því að ég hef greinilega skráð mig inn á hana í apríl 2007 en ég man að Arna og Jenni sendu mér bæði einhvern skrítinn póst sem báðir leiddu mig inn á sömu síðuna. Ég skildi ekkert í þessu og gafst fljótlega upp á þessu. Tölvunördið ég!
Annars er fátt að frétta. Nema mér fannst skaupið lélegt, veit ekki með ykkur. Ágætir kaflar inn á milli en í heildina ekkert spes.
Sjitt, þetta fer að verða eitthvert leiðinda blogg. Eins og ég sé fúll á móti. Lífið er semsagt allt að dett í þetta vanalega.. vinna.. blak.. tónó.. Gunnar kominn á sjóinn.
Hann söng svo fallega fyrir mig áður en hann fór út á sjó:
"Þegar loksins er búið Skaupið
og þarf að taka niður skrautið.
Verð ég kominn í frið og ró
út á sjó, út á sjó, út á sjó." 
Styttist óðfluga í hjónaball. Jibbí jei. Mig hlakkar til. Dressið klárt og allt!
Knús á línuna...
Gleðileg Jól
28. desember 2008 klukkan 14:16
... já eða ætti maður frekar að segja gleðilega rest! Það er kannski nærri.
Ég held ég sé hreinlega komin með ofnæmi fyrir tölvunni, hef ekki nennt að setjast fyrir framan hana upp á síðkastið. En svona smá upprifjun af síðasta mánuði....
...tónleikarnir gengu vel og það var mjög gaman að taka þátt í þessu öllu saman.
...við skötuhjú skelltum okkur í borg óttans í byrjun des, náðum okkur í jólastress og keyptum jólagjafir. Brölluðum svosem ýmislegt annað þessa viku sem við stoppuðum t.d. í leikhús á Fló á Sinni og ég gjörsamlega grét af hlátri. Aldís og Jói buðu í svaka veislumáltíð að vanda og auðvitað var spilað á eftir. Ekki munaði miklu að við yrðum okkur úti um jólasteik á leiðinni á leiðinni suður rétt sluppum við, við að keyra á hreindýr í Hamarsfirðinum.
...síðan skelltum við okkur á árshátíð hjá Loðnuvinnslunni. Það var ekki lítið gaman og skemmtiatriðin alveg eðall, sérstaklega myndband sem sýnt var þar sem var í formi fréttar frá fréttastofu RÚV. Jóhanna Vigdís las fréttina og Björn Malmqist tók viðtöl og var fréttaefnið að svo sýktur síldarfarmur hefði komið á land að bærinn væri í herkví. Þar sáust myndir frá dópskútumálinu, viðtölu og gamlar myndir af Gísla Jónatans og Eiríki Óla. Þvílík snilld. Þarna grét ég líka af hlátri.
...fórum og skoðuðum Fljótsdalsvirkjun hjá Ívari. Þetta er alveg ótúlega stórt mannvirki. Mér finnst mjög sérstakt að keyra á bíl inn í fjalli í endalaust löngum göngum.
...svo auðvita þetta hefðbundna jólastúss með tilheyrandi fullt af heimsóknum til ættingja og vina. Þessi jólin erum við búin að vera í Firðinum Fagra og erum þar enn. Sögulegur atburður gerðist á 2. í jólum en karl og kerling fengu skyndilega ellimannaveiki og fóru ekki á ball. Man ekki eftir að slíkt hafi áður gerst á 2. í jólum. Veðrið er búið að vera geggjað hér um jólin, þvílíkt mikið af flottum glitskýjum o.fl. Við rúntuðum út í skriður í gær og komumst í tæri við fálka. Hann sat á steini 3 m frá okkur. Hann var ekkert smá stór og flottur og flott að sjá hann hefja sig á flug.
Jæja komið nóg af bulli. Vona þið hafið haft það gott um jólin. Sendi jólaknús á línuna
Guðbjörg Rós
Líður að tónleikum
26. nóvember 2008 klukkan 19:53
Jæja nú styttist í aðventutónleika Kórs Fjarðabyggðar. Það vill svo skemmtilega til að ég tróð mér í hann. Maður kann að velja þetta. Ég er nú ekki að syngja með hverjum sem er! Ég vel að vera með comeback eftir margra ára pásu þegar rétta fólkið mætir en einsöngvarar eru Egill Ólafsson og Diddú.
Ef ég segi satt og rétt frá og ýki ekki (en mín fjölskylda er tæpast þekkt fyrir það) ætti ég nú frekar að segja var dreginn í hann en mamma, Tinna og Heiða samstarfskona mín drógu mig af stað. Við erum búin að vera að æfa í nokkrar vikur og er mjög gaman. Við Tinna lækkum meðalaldurinn töluvert en höfum bara gaman af. En það er um að gera að ég aulýsi þetta vel.... tónleikarnir eru á sunnudaginn (30. nóv) kl. 16.00 í Kirkju- og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar Eskifirði. Þarna verða líka barnakór úr Fjarðabyggð og strengjasveit. Eins og allt lítur út eftir síðustu æfingu þá stend ég á endanum og líður eins og fífli því ég væri alveg til í að hverfa í miðjum kórnum.
Eftir þessa söngtörn er fátt annað að gera en að reyna að herma eftir nágrönnunum og henda upp einhverjum seríum en hér í götu var búið að fullskreita 1 hús fyrir rúmri viku (meira að segja ljósajólatré úti í glugga) og 2 núna. Ég verð nú að monta mig og segja að ég hafi sko verið Magga myndó á mánudaginn (Gunnar reyndar líka) því við steiktum 4 kg. af fiskibollum. Þannig ef þið vogið ykkur í heimsókn eigið þið þá hættu að vera látin éta fiskibollur. Ég hef aldrei fundið aðra eins lykt í mínum hýbýlum eftir að ég fór að búa. Þetta lyktar ekki eins og heimili hjá ungu pari heldur áttræðum gamalmennum, svona típisk, þung, súr matarlykt. Jakk....
Annars styttist í langþráð frí en ég ætla að klára sumarfríið mitt í byrjun desember - ekki seinna vænna. Við ætlum að skella okkur í bæinn og ná okkur í svolítið jólastress. Það hlýtur að flokkast undir það að koma sér í gírinn fyrir jólinn
.
Svo er bara að sjá hvort maður kemst út úr húsi á morgunn en veðurkortið í kvöld var vægast sagt skrautlegt!
Arios amigos
Þjóðnýting
19. nóvember 2008 klukkan 19:13
Fann vísu með þessum titli í fórum mínum. Mér fannst hún mjög skondin þegar ég sá hana á sínum tíma (15. okt) og ætlaði að henda henni á netið en... bloggletin hefur verið þvílík undanfarið að það hefur hreinlega ekkert drullast hérna inn. En hér er vísan:
Á lítilli eyju við heimsskautshjara
býr heimakær, vansvefta, auðtrúa þjóð.
Hún leit upp til ráðsmanna loðinna svara
sem loforðum öfugt í kok hennar tróð.
Þeir níddust á trausi og trúgirni okkar
- táldrógu sannlega helvítis til.
Og allt sem þeir gerðu, þeir gordrullusokkar
gerðu þeir flottræflum sínum í vil.
En frelsið er háðara boðum og bönnum
en bláeygðir frjálshugar ímynda sér.
Þjóð mín var notuð af nýríkum mönnun
og nauðgað af útrásarvíkingaher.
Höfundur óþekktur
Stelpur! Henti nothæfum myndum af konukvöldinu inn á myndasíðuna mína og þið getið skoðað þær þar. Slóðin er: http://www.flickr.com/photos/23325941@N04/
Annars er ER kvöld í kvöld. Leiðist aldrei þessi þáttur þó að séríurnar séu sjálfsagt orðnar allt of margar að flestra mati. Þetta er e-ð sem er orðið af vana hjá mér að glápa á en þetta hefur gengið síðan ég var í grunnskóla (næstum jafn langt síðan og amma var ung ;)
Hilsen...
Hvað ef Búðingar/Búðingur stjórnaði landinu?
13. nóvember 2008 klukkan 18:07
Ég ákvað í þetta skiptið á láta ekki líða viku milli færsla. Var e-ð að hringla hér á síðunni og datt allt í einu inn á skilgreiningu mína á Búðingi sem ég henti á blað þegar ég byrjaði með síðuna. Þá skaust upp í huga mér sú tilhugsun - Hvað ef Búðingu (sem hefur auðvita ekkert nema frábæra hæfileika) myndi stjórna landinu? Væri kreppa núna? Rifjum aðeins upp hvað Búðingur er:
Hvað er Búðingur?
Til að átta sig á því þarf aðeins að rifja upp landafræði kunnáttuna.
Búðakauptún eða Búðir er þorp innarlega norðan megin í Fáskrúðsfirði. Þá hlýtur að liggja í augum uppi að hver sá sem kemur frá Búðum er Búðingur.
Hver má kalla sig Búðing?
Hver sá sem býr á Búðum og hefur haft búsetu þar til lengri eða skemmri tíma telst til Búðinga. Einnig geta brottfluttir Búðingar kallað sig Búðinga, sama hversu lengi þeir bjuggu á staðnum, fer allt eftir því hvaða taugar menn bera til staðarins. Nú, þeir sem ættaðir eru frá staðnum eða bera önnur sterk tengsl til staðarins geta auðvitað kallað sig Búðinga þó svo búseta á staðnum hafi verið takmörkuð.
Í raun og veru er kannski bara eitt lögmál: Þeir sem finna hjá sér þá þörf að kalla sig Búðing er það fullkomlega leyfilegt!!
Hverjir eru eiginleikar Búðings?
Búðingur eru í eðli sínu mjög skapgóður og skemmtilegur. Hann er félagslyndur með eindæmum og hæfileikaríkur. Hann er yfirleitt allra manna snjallastur og ber af hvað varðar útgeislun og fegurð. Búðingurinn er einkar þægilegur í umgengni, glaðlyndur og uppátækjasamur en umburðalyndur og þolinmóður er hann þó gagnvart allt og öllum. Búðingurinn er vinnusamur og metnaðarfullur. Hann vinnur hörðum höndum að þeim markmiðum sem hann hefur sett sér í lífinu og hættir ekki fyrr en þeim og toppnum hefur verið náð. Þetta á við hann í einu og öllu, sama um hvort er að ræða vinnu, áhugamál, menntun eða íþróttir. Ekki má gleyma þeim eiginleikum Búðingsins að hann er hógvær svo eftir er tekið og er lítið fyrir að trana sér fram.
Búðingar eru í raun rjómi íslenska kynstofnsins.
Og svo spyr ég aftur
- Hvað ef Búðingur stjórnaði Íslandi?
- Hvað haldið þið?
Búðingur sem er orðinn leiður á kreppu og krepputali!
Halló
07. nóvember 2008 klukkan 14:20
Daginn, daginn. Best að henda einhverju hér inn svo Jóna Björg fari ekki að kvarta
þótt ég hafi svo sem ekkert til málanna að leggja þessa daganna.
Takk fyrir afmæliskveðjurnar og kvittið. Þið stóðurst væntingar.
Hér á Nobbanum er bara vorveður, úði, þoka og 10° hiti og allir orðnir snarruglaðir. Flugurnar farnar og suða og kóngulærnanar farnar að spinna vefi aftur. Eins gott að ég er búin að setja nagladekkin undir
.
Skutlan ætlar að vera á faraldsfæti þessa helgina en við stefnum á að rústa eins og einu blakmóti á Seyðisfirði. Í tilefni þess datt þessi litla staka upp úr mér (ég er soddan ógurlegt ljóðskáld):
Fyrir blakmót er ég gíruð og klár,
enginn magapína.
Anstæðingar fella blóð svita og tár,
við ætlum þeim í tvo heima að sýna.
Tatarata.....
Svo er auðvita stefnt á konukvöld á Egilsstöðum með YfirSmellinum og öllum hinum skutlunum. Og hvað það verður mikið stuð.
Jæja best að sinna vinnunni.
þótt ég hafi svo sem ekkert til málanna að leggja þessa daganna.Takk fyrir afmæliskveðjurnar og kvittið. Þið stóðurst væntingar.
Hér á Nobbanum er bara vorveður, úði, þoka og 10° hiti og allir orðnir snarruglaðir. Flugurnar farnar og suða og kóngulærnanar farnar að spinna vefi aftur. Eins gott að ég er búin að setja nagladekkin undir
. Skutlan ætlar að vera á faraldsfæti þessa helgina en við stefnum á að rústa eins og einu blakmóti á Seyðisfirði. Í tilefni þess datt þessi litla staka upp úr mér (ég er soddan ógurlegt ljóðskáld):
Fyrir blakmót er ég gíruð og klár,
enginn magapína.
Anstæðingar fella blóð svita og tár,
við ætlum þeim í tvo heima að sýna.
Tatarata.....
Svo er auðvita stefnt á konukvöld á Egilsstöðum með YfirSmellinum og öllum hinum skutlunum. Og hvað það verður mikið stuð.
Jæja best að sinna vinnunni.
Afmæli
30. október 2008 klukkan 10:15
Núna má ég allt ég á afmæli í dag, ég nenni ekki neinu... Trallallallala....
Já nú kemur afmælisbloggfærsla svona svo enginn gleymi að óska mér til hamingju með daginn. Og af því ég á afmæli í dag ætla ég að stela 3 mín úr vinnunni í dag í þetta. Ég er búin að fá 1 afmælissöng í dag, endurhæfingahópurinn sem er hjá okkur núna komu svo sæt og sungu fyrir mig í morgunn. Og ekki var verra að þau sungu "Hún er 19 í dag!". Hvað er betra en að byrja daginn svona?
Ef einhverjir ætla að sníkja afmælisköku hjá mér þá er endilega að kíkja í kaffi annað kvöld. Ég skal vera búin að skella í einhverja dellu þá.
Jóna það er ekki kominn 1og 1/2 mánuður! Sko ég get þetta.
Lífið gengur sinn vanagang miðað við árstíma, vinna, sofa, blaka, sauma jóladúk, föndra jólakort, skokka, syngja, spila og spjalla við Gunnar ef tími gefst til 
Tengdó varð sextug 21. og hélt þetta líka heljarins fína partí síðasta föstudag, gjörsamlega pakkað út úr dyrum og fínasta stemming.
Jæja ætlaði bara að stela 3 mín, þær eru sjálfsagt búnar.
Knús á líuna
Guðbjörg Rós afmælisbarn
Ný bloggfærsla!
07. október 2008 klukkan 17:33